Tala dýrsins er tala sem minnst er á í Opinberunarbók Jóhannesar í nýja testamentinu. Talan tengist ófreskju, eða „dýri“, sem birtist Jóhannesi guðspjallamanni í sýn og er gjarnan túlkað sem andkristurinn sem mun birtast á jörðinni þegar dómsdagur er í nánd.