Samveldisleikarnir er fjölíþróttamót haldið á fjögurra ára fresti í Breska samveldinu þar sem flest þátttökulönd eru fyrrum nýlendur í Breska heimsveldinu. Upphaflega hét mótið Bresku heimsveldisleikarnir árið 1930, en nafninu hefur nokkrum sinnum verið breytt.