Erkibiskupsdæmið í Bremen (þýska: Erzbistum Bremen; latín: Archidioecesis Bremensis), einnig kallað Erkibiskupsdæmið Hamborg-Bremen, var kaþólskt erkibiskupsdæmi innan Hins Heilaga rómverska ríkis frá um 787 til 1540. Eftir siðaskiptin 1540 var það lúterskt erkibiskupsdæmi fram til 1648.
